Lygasaga

– Hver fjárinn. Hvað ert þú að gera hér? hvæsir hann. Saga rífur sig lausa og hrökklast undan húsverðinum. – Ég gerði þetta ekki. Alveg satt! – Komdu þér burt. Annars … hreytir hann í hana. Það kemur óvæntur blossi. Steinn stendur innar á ganginum með myndavélina á lofti. Húsvörðurinn lítur flóttalega í kringum sig. Hann smeygir sér síðan inn á salernið og lokar á eftir sér.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=