Lygasaga

Saga stígur niður af klósettinu og opnar dyrnar varlega. Hún hrekkur við. Á hvítan vegginn er komið stórt svart spor. Það líkist fótspori kattar og út úr því standa beittar klær. Á gólfinu liggur úðabrúsi. Saga kannast eitthvað við sporið. Hún ætlar að lauma sér út en gengur beint í fangið á húsverðinum. Hann grípur í öxlina á henni og skellir fötu með sápuvatni í gólfið. 15

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=