Lygasaga

Hún heyrir hringl og síðan hviss. Svo finnur hún sterka lykt. Hurðinni er skellt og Saga missir næstum því jafnvægið. Það er gengið inn þungum skrefum. – Hvað ertu að gera? Vorum við ekki búnir að ræða þetta? – Hvenær fæ ég einhvern pening? Þú sagðir að ég ætti að fá borgað. – Ég þarf að losa mig við draslið fyrst. – Þú sagðir það líka síðast. – Þú verður að hætta þessu. Þetta kemur upp um okkur að lokum. – Þú lætur mig um öll skítverkin. Ég vil fá greitt! – Vertu bara til friðs, titturinn þinn. Annars … Saga verður vör við átök. Eitthvað fellur í gólfið. Dyrum er skellt og allt verður hljótt. 14

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=