Lygasaga

ALVEG SATT! Saga stingur höfðinu inn á strákasalernið. Enginn þar. Síðan lítur hún undir hurðirnar eins og hún hefur séð gert í bíómynd. Engir fætur. Hún fer inn á eitt klósettið og lokar til að sjá hurðina að innan. Allt í einu er dyrum hrundið upp og hún heyrir að gengið er inn. Saga klifrar upp á klósettið. Hún ætlar ekki að láta sjá sig inni á strákaklósettinu. Þá verður sko hlegið að henni. 13

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=