Lygasaga

– Saga, hvað er eiginlega í gangi? hrópar mamma hennar og réttir bollann við. Kötturinn er horfinn en snúruflækja liggur eftir á borðinu. Í snúrunni hangir nýlegur farsími. Saga tekur símann upp. – Hvar skyldi Krummi hafa fundið þennan? segir hún hlæjandi og reynir að kveikja á símanum. Mamma hennar hnyklar brýnnar. – Saga, finnst þér þetta sniðugt? Síðast kom Krummi með hnykil frá konunni á efstu hæðinni og þar áður poka með fuglafóðri. Þú verður að finna út hver á símann og skila honum. Strax. 9

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=