Litla Lesrún

6 Þrívíð form Hvernig ætli sé að horfa á bíómynd með þrívíddar-gleraugum? Allir hlutir þar sem þrjár hliðar sjást eru í þrívídd. Hver ætli sé munurinn á tvívídd og þrívídd? Lesið ljóðið og skrifið rétt form við hverja mynd. Þrívíð form eru ekki flöt. Þrívíð form má klæða í föt. Keila er eins og partý-höttur. Kúla eins og bolti og hnöttur. Ferstrendingur , blokk og pakki. Teningi kastar í spili krakki. Sívalningur eins og dós. Píramídi – hús Faraós. Þrívíð form eru hér og þar. Þrívíð form eru alls staðar! ferstrendingur Rím Hvaða orð ríma í ljóðinu?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=