Litla Lesrún

48 Til kennara Litla-Lesrún er einkum ætluð nemendum á yngsta stigi grunnskólans og kemur á undan Lesrúnu og Lesrúnu 2 . Bókinni er ætlað að mæta áherslum í aðalnámskrá um að nemendur geti lesið mismunandi tegundir texta og ráði yfir aðferðum og leiðum til að skilja og túlka það sem þeir lesa. Þeir geti nýtt sér fjölbreyttan orðaforða og ráðið í merkingu orða út frá samhengi. Áherslur efnisins eru eins og fram kemur í undirtitli, að lesa, skilja og læra. Mikilvægt er að staldra við þegar lesið er, ræða saman, hugsa um efnið og velta því fyrir sér. Með því móti verður lestur bæði gagnlegur og skemmtilegur. Samkvæmt aðalnámskrá felst í hug- takinu læsi bæði lestur og ritun. Í þessari bók er fyrst og fremst lögð áhersla á lesturinn, lesfærni og lesskilning. Miðað er við að nemendur æfist í að lesa mismunandi texta og fái þjálfun í að beita skipulega aðferðum til að glöggva sig á efninu, rifja það upp og draga út aðalatriði. Lögð er áhersla á að nemendur æfist í að nota aðferðir til að auðvelda úrvinnslu, bæði munnlega og skriflega. Hugað er að bakgrunnsþekkingu og hvatt til samvinnu og umræðna. Unnið er með hugarkort, Vennkort, spurningagerðir, myndlæsi, fyrirmæli og fleira. Hugsunin að baki flestum verkefnum er að nemendur leysi þau sameiginlega og eru fyrirmæli í bókinni í fleirtölu til að undirstrika samvinnu og samræður. Táknmyndir eru til leiðbeiningar um það á hvern hátt verkefnin skuli unnin og eru þær útskýrðar fremst í bókinni. Efnið í Litlu-Lesrúnu er fjölbreytt; ýmiss konar fróðleikur, sögur, gátur og ljóð. Gengið er út frá því að nemendur séu búnir að ná nokkurri lestrarfærni en þar semfærni nemenda í lestri ermismunandi er gott að kennari lesi textann upphátt í byrjun og veki athygli á einstökum orðum sem unnið verður með. Í framhaldinu mætti nýta kórlestur, bergmálslestur, paralestur eða skiptilestur. Flestir lestextar eru á vinstri blaðsíðu. Oftast er stutt kveikja efst á síðunni sem leiðir inn í textann. Þar er yfirleitt verið að hvetja til umræðna í þeim tilgangi að fá nemendur til að íhuga hvað þeir vita nú þegar um efnið. Að tengja við fyrri þekkingu auðveldar þeim að tileinka sér lestextann sem framundan er. Á hægri blaðsíðu eru verkefni sem reyna á lesskilning með margvíslegum hætti. Nemendur nýta sér upplýsingar úr texta til að vinna verkefni og draga ályktanir. Flestar verkefnagerðir eru endurteknar nokkrum sinnum og eru svipaðar áherslur og í seinni bókum Lesrúnar . Í Litlu-Lesrúnu er mikil áhersla lögð á vinnu með aðalatriði í texta, orðskilning, rím og samsett orð. Með markvissri endurtekningu ná nemendur að tileinka sér ný orð og hugtök sem smám saman yfirfærast á frásögn og ritun. Kennsluleiðbeiningar með Litlu-Lesrúnu má nálgast á mms.is

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=