Litla Lesrún

30 Járni Ég heiti Jón Árni. Ég vinn sem járnsmiður. Ég er líka ofurhetja og þá heiti ég Járni. Ég er kraftmikill og brynjan mín er svo sterk að ekkert kemst í gegnum hana. Ég er líka mjög jákvæður og ef einhver þarf á hjálp að halda mæti ég á svæðið. Búningurinn minn er auðvitað úr járni og í mínum uppáhaldslitum sem eru gulur, rauður og grár. Einkunnarorðin mín eru: Ef gamanið fer að kárna – kallaðu á Járna! Litið Járna í réttum litum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=