Litla Lesrún

28 Ofurhetjur Hvað eru ofurhetjur? Ræðið saman og teljið upp hversu margar ofurhetjur þið þekkið? Lesið síðan um nokkrar ofurhetjur. Hvaða ofurkrafta ætli þær hafi? Sjón-Lína Lína heiti ég og er bókavörður. Mér finnst gaman að lesa og ég þekki næstum allar bækur á bókasafninu. Stundum breytist ég í ofurhetju sem kallast Sjón-Lína. Þá get ég séð í gegnum hús og fjöll og að auki get ég lesið á ógnarhraða. Ef þarf að finna eitthvað sem er týnt þá er ég rétta manneskjan í verkið, því ég er svo fundvís. Búningurinn minn er blá skikkja, grænn kjóll og gul stígvél. Einkunnarorðin mín eru: Litið Sjón-Línu í réttum litum. Sjón- Lína – finnur hlutina þína!

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=