Litla Lesrún

21 Hver er ég? Skoðið myndina af fötunum á snúrunni og leysið gáturnar. Ég er sett utan um háls á fólki og það er bundinn á mig hnútur. Karlar nota mig oftar en konur. Ég er doppótt. Hver er ég? Ég er með tvær rósóttar skálmar en þær eru stuttar. Fólk klæðist mér þegar það er hlýtt úti. Hver er ég? Ég er með langar ermar og kraga. Ég er köflóttur. Ég er yfirhöfn. Hver er ég? Ég er röndóttur. Ég er oft notaður sem spariflík. Konur nota mig oftar en karlar. Hver er ég?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=