Litla Lesrún

18 Fötin okkar Hvað kallast fötin sem þið eruð í? Hvernig eru þau á litinn? Hverju mynduð þið klæðast ef þið væruð á leið í veislu? Lesið um fjölskyldu á leið í veislu og strikið undir orðin sem lýsa því hvernig fötin eru á litinn. Fríða og Finnur eru á leið í veislu með börnum sínum. Þau eru öll í fínum fötum. Bræðurnir Frosti og Funi eru í hvítum peysum, bláum buxum og með rauðar derhúfur. Fía systir þeirra er í bleikum stuttermabol og fjólubláu pilsi. Fríða er í græna sparikjólnum sínum, rauðum jakka og í brúnum leðurstígvélum. Finnur er í svörtum frakka, bláum jakkafötum og appelsínugulri skyrtu. Þetta er sannarlega flott fjölskylda. Á hvað er best að hengja sparifötin sín?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=