Litla Lesrún

16 Snúður náði ekki að fylgja þúsundfætlunum eftir. Hvað haldið þið að gerist næst? Spjallið saman um framhaldið og lesið svo áfram um snigilinn seiga. Aftur er Snúður orðinn einn. Hann skríður dapur inn í kuðunginn sinn og grætur. Hann heyrir í þúsundfætlunum þegar þær koma til baka úr fótboltanum. - Snúður, af hverju komstu ekki? Við biðum og biðum eftir þér. Snúður svarar ekki strax. Hann skammast sín fyrir að vera svona lengi að labba. - Öhh, ég fékk flís í tána. Ég ætla að hvíla mig smástund, segir hann að lokum. • Af hverju er Snúður dapur? • Af hverju laug hann?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=