Litla Lesrún

11 Ormur æpir upp yfir sig af skelfingu. Hann lítur til himins og óskar sér: - Ég vil gera og ég vil geta. Ég vil verða ofurhetja! Púff! Elding skall á jörðinni. Ormur breyttist. Hann varð stór og stæltur. Hann fékk bláan búk og um hálsinn gulan dúk. Hann gat skriðið ofur-hratt. og hann gat líka flogið. Ormur sá aðra maðka í vanda. Hann bjargaði maðki af öngli. Hann hrifsaði maðk úr nefi fugls. Þegar hinir maðkarnir sáu Orm skríða hjá sögðu þeir: - Þarna fer vinur okkar, Ormur ofurhetja.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=