Líkami minn tilheyrir mér - Klb. fyrir 1 - 4. bekk

38 MENNTAMÁLASTOFNUN – BARNAHEILL 2023 | 40342 | LÍKAMI MINN TILHEYRIR MÉR – 1.–4. BEKKUR Er löglegt fyrir fullorðna að snerta kynfæri hvers annars? Fullorðnir mega snerta og strjúka kynfæri hver annars ef báðir aðilar eru tilbúnir til þess. Fullorðið fólk vill helst vera í næði þegar það stundar kynlíf. Ef fólk er ástfangið finnst því oft gott að snerta hvert annað. Þá líður fólki vel saman og enginn annar þarf að vita hvað það er að gera. En fullorðnir hafa aldrei leyfi til að kúra og strjúka kynfæri barna. Hvað gerist ef börn tilkynna kynferðislegt ofbeldi/Hvað gerist ef Fjóla, Orri eða Frikki segja frá? Þá verður hinn fullorðni að hringja í lögregluna/barnavernd sem mun hjálpa þeim. Lögreglan mun stoppa frænda Fjólu og þjálfara Frikka, svo að þau þurfa ekki lengur að snerta kynfæri þeirra. Eftir það munu Fjóla og Frikki tala við sérfræðing sem er góður í að aðstoða börn sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Sjá einnig 2. þátt, umræðuspurningu 5: Þegar fullorðið fólk brýtur lög. Af hverju getur Fjóla ekki talað eða hrópað stopp? Þegar einhver verður hræddur getur hann hegðað sér á mismunandi vegu. Sumir hrópa en aðrir hlaupa í burtu. Sumir þegja algjörlega vegna þess að þeir verða svo hræddir að þeir geta ekki hreyft sig. Þeim líður næstum eins og þeir frjósi. Kannski gerðist það hjá Fjólu. Fjóla á líka erfitt með að gera ekki það sem frændi hennar biður hana um. Fullorðnir ráða svo miklu og börn þurfa að hlusta á þá sem eru fullorðnir. Oftast er rétt að börn geri það sem fullorðna fólkið segir. En þegar fullorðið fólk vill gera eitthvað sem má ekki, þá á ekki að hlusta á það. Þá hafa börn rétt á að segja nei og segja öðrum fullorðnum frá. Hvers vegna hræðir frændi Fjólu hana/Hvers vegna segir Magga að margir verði reiðir út í Orra ef hann segir frá? Magga og frændinn hræða börnin því þau eru hrædd um að aðrir fullorðnir komist að því að þau eru að gera ólöglega hluti. Þau vilja að kynferðisofbeldið sé leyndarmál. Ef aðrir fullorðnir komast að því hvað Magga og frændinn eru að gera verða þau að hætta því. Og það vilja þau ekki. Það kemur fyrir að fullorðnir sem vilja snerta kynfæri barna finnist það góð hugmynd að hræða börn á þennan hátt. En ef fullorðinn aðili hræðir börn, er mjög mikilvægt að segja öðrum fullorðnum frá því, sama hversu hrædd þið eruð. Því þá fái þið hjálp. 5 6 7 8

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=