Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 9 UPPHITUN Zip–Zap–Boing HREYFILEIKUR, SAMVINNA, HLUSTUN, EINBEITING Tilgangur Zip–Zap–Boing er taktfastur og orkumikill leikur sem eflir hlustun, viðbragðshraða, augnsamband og samstillingu hópsins. Leikurinn hentar vel sem upphitun og til að virkja hópinn. Framkvæmd Þátttakendur standa í hring. Einn byrjar, snýr sér að næsta þátttakanda til hægri eða vinstri, nær augnsambandi, klappar saman höndunum og segir hátt og skýrt „Zip“. ZIP • Sá sem fær sent „Zip“ klappar strax saman höndunum, nær augnsambandi við næsta þátttakanda við hliðina á sér og sendir áfram „Zip“ í sömu átt. BOING • Sá sem fær „Zip“ getur snúið við stefnu leiksins með því að:  horfa í augun á þeim sem sendi,  veifa báðum höndum sitthvoru megin við höfuðið,  og segja hátt „Boing“. • Þá heldur leikurinn áfram í hina áttina með „Zip“. ZAP • Hægt er að brjóta upp hringinn og segja hátt og snjallt „Zap“ og senda til einhvers sem stendur ekki við hliðina á þeim sem er að gera. • Sá sem fær „Zap“ má ekki segja „Boing“, heldur verður að senda „Zip“ áfram til næsta þátttakanda til hægri eða vinstri. Útfærslur Þegar hópurinn hefur náð tökum á grunnreglunum má bæta við meiri áskorunum. Hvetjið þátttakendur til að búa til eigin reglur.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=