LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 7 HÓPEFLI | UPPHITUN Tékk-inn | Tékk-út – framhald SJÁLFSKOÐUN, SAMKENND, TJÁNING, ÍGRUNDUN OG TRAUST Útfærslur Hægt er að aðlaga æfinguna að aldri, hóp og aðstæðum. Hér eru dæmi um fleiri leiðir til að tékka sig inn og út: 1. Skali eða svipbrigði – Börnin staðsetja sig á skala, halda tilfinningadagbók eða benda á svip sem lýsir líðan þeirra þá stundina, sjá hér á eftir. 2. Hlutir – Börnin velja hlut sem þau tengja við líðan sína. 3. Þumall – Þumall upp = góð líðan Þumall til hliðar = miðlungs líðan Þumall niður = slæm líðan 4. Hljóð – Börnin búa til hljóð, dýrahljóð, tónbrot eða annað sem lýsir líðan þeirra. 5. Lýsingarorð – Eitt orð sem lýsir líðan hvers og eins. 6. Matur – Til dæmis er hægt að spyrja: „Ef þú værir matur í dag, hvaða matur værir þú?“ 7. Veður – Til dæmis er hægt að spyrja: „Ef þú værir veður í dag, hvaða veður værir þú?“ 8. Frægar persónur – Til dæmis er hægt að spyrja: „Er einhver fræg persóna sem þú tengir sérstaklega við í dag?“ 9. Tjákn (emoji) – Til dæmis er hægt að spyrja: „Er eitthvað tjákn sem þú tengir sérstaklega við í dag?“ 10. Svona líður mér. a. Hvernig líður mér í dag? Í dag líður mér svona vegna þess að: b. Í dag er ég á skalanum: 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Orð sem lýsir líðan minni í dag: c. Líðan mín í dag er eins og … sól ský rigning stormur regnbogi Ég valdi þetta vegna þess að: d. Í þessari viku fann ég mest fyrir: gleði ró spennu kvíða reiði þreytu Eitt sem hjálpaði mér í vikunni:
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=