Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 6 HÓPEFLI | UPPHITUN Tékk-inn | Tékk-út SJÁLFSKOÐUN, SAMKENND, TJÁNING, ÍGRUNDUN OG TRAUST Tilgangur Tékk-inn | Tékk-út er einföld æfing sem styður börn í að vera meðvituð um eigin líðan og taka eftir líðan annarra. Æfingin eflir sjálfsskoðun, samkennd og tengsl innan hópsins og hjálpar börnum að samstilla sig í upphafi og lok kennslustunda. Mismunandi er hvað hentar hverjum hópi en gott viðmið er að gera þessa æfingu reglulega t.d. í upphafi og lok hvers tíma, í upphafi og lok dags eða með reglulegu millibili. Því oftar sem æfingin er notuð, því eðlilegri og áhrifaríkari verður hún. Framkvæmd Hópurinn sest saman í hring. Kennari eða leiðbeinandi biður börnin að meta líðan sína á skalanum 1–10, miðað við hvernig þeim líður á því augnabliki. Hvert barn ræður hvort það deilir einungis tölunni eða útskýrir nánar hvað orsakar þessa líðan, hvort sem hún er góð eða slæm. Alltaf er í boði að sitja í hringnum og hlusta án þess að deila. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • skapa öruggt og fordómalaust rými • minna á að öll líðan er leyfileg • hlusta án þess að greina eða leysa vandamál • taka eftir mynstrum í líðan barna þegar æfingin er notuð reglulega Athugið Æfingin er ekki ætluð til að vinna úr flóknum málum, tilfinningum eða áföllum. Hún veitir einungis innsýn í dagsform hópsins. Æfingin styður við uppbyggingu trausts í hópnum og gerir hópnum kleift að sýna tillitssemi, vera til staðar fyrir hvert annað og samgleðjast þegar við á. Hún veitir einnig kennara eða leiðbeinanda tækifæri til að fylgjast með líðan barna yfir ákveðinn tíma. Oft skapast einlæg stund í upphafi og lok hvers tíma þar sem öll samstilla sig. Í framhaldi af æfingunni er hægt að útskýra námsefnið sem er fram undan eða ræða önnur mál. Einnig má nýta stundina til ígrundunar á því sem unnið var með í tímanum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=