LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 5 HÓPEFLI | UPPHITUN Að sitja í hring TRAUST Tilgangur Að sitja í hring í upphafi og lok kennslustundar er ákveðin núllstilling fyrir hópinn og skapar gott rými fyrir samræður, augnsamband, jafnræði, samveru á jafningjagrundvelli og opin samskipti. Fyrir börn, ekki síst þau sem eru í viðkvæmri stöðu, getur hringurinn veitt öryggi. Skýr rammi og sameiginlegt rými geta dregið úr kvíða og auðveldað þátttöku án þess að þau þurfa að standa ein fyrir framan hópinn Framkvæmd Hópurinn sest saman í hring þannig að börnin sjái öll hvert annað. Kennari situr með hópnum og er hluti af heildinn, án þess að vera í sviðsljósinu. Markmiðið er að hvert og eitt barn fái jafnan sess og upplifi sig sem virkan þátttakanda. Í hringnum er hægt að: • búa til samverustund í skólanum • deila sögum og hugmyndum • tékka sig inn og út (sjá næstu æfingu) • fara í leiki • syngja saman • fara yfir það sem er fram undan eða ígrunda það sem er liðið • ræða áskoranir og sigra • ræða samvinnu og hvað hægt er að gera til að bæta hana • skapa rými þar sem öll geta tekið þátt á eigin forsendum Hlutverk kennara Markmiðið er að: • skapa rými þar sem öll fá hlustun og virðingu • tryggja að þátttaka sé ávallt valfrjáls • bjóða jöfn tækifæri til tjáningar og hlustunar • viðhalda öruggu, rólegu og styðjandi andrúmslofti
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=