Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 48 Lokaorð Við í Leiklistarskóla Borgarleikhússins trúum því að leiklistin sé töfrum gædd. Hún er öflugt verkfæri sem getur eflt tjáningu, sjálfstraust og félagslega færni barna og ungmenna. Með leiklist má skapa öruggt rými þar sem börn fá útrás, geta unnið með tilfinningar og tjáð sig á skapandi hátt. Slíkt rými getur einnig byggt brú milli tungumála og menningarheima. Mikilvægt er að hafa áfallamiðaða nálgun að leiðarljósi. Fyrir börn sem hafa flust á milli landa, upplifað áföll eða aðskilnað getur leiklistin orðið jákvæð leið til að vinna úr reynslu og mynda tengsl á nýjum stað. Í leiklistarleikjum er oft mikil orka og gleði – og stundum fylgja því læti. Því er gagnlegt að blanda saman ólíkum tegundum leikja: orkumiklum hreyfileikjum og æfingum sem efla einbeitingu, hlustun og samvinnu. Með endurtekningu öðlast börn meiri tök, ramminn skýrist og ró eykst, jafnvel þótt leikurinn sé áfram lifandi og kröftugur. Leiðbeinendur eru jafnframt hvött til að fylgjast vel með hópnum og taka sérstaklega eftir þeim sem draga sig í hlé. Þau geta auðveldlega orðið ósýnileg í látunum – en eiga líka skilið að fá tækifæri til að stíga fram á sínum hraða og prófa sig áfram. Ef erfið mál koma upp í leik eða samtali er mikilvægt að fylgja verkferlum starfstaðarins.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=