Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 47 Kennslustund 4 Fyrir hóp sem þarf ró, að styrkja einbeitingu og vinna með ímyndunarafl. Markmið: Ró, einbeiting, hlustun og skapandi ímyndunarafl. Tími: 40–60 mínútur 1. Tékk inn | Tékk út, bls. 6 (5 mín) Nemendur sitja í hring og lýsa líðan sinni með lýsingarorði. Dæmi: „Ég er spennt“, „Ég er þreyttur.“ Þau sem vilja ekki tala geta einnig sýnt líðan með látbragði. 2. Róleg upphitun (10–15 mín) - Speglaleikur, bls. 33: Nemendur vinna í pörum og spegla hreyfingar hvers annars. Hreyfingar eru hægar og markvissar til að æfa einbeitingu og samstillingu. - Að láta hreyfinguna ganga, bls. 25 – róleg útgáfa: Hljóð og hreyfingar ganga hringinn, en hópurinn reynir að halda rólegum og mjúkum takti. 3. Sköpun og ímyndunarafl (15–20 mín) Stillimyndir, bls. 32: Nemendur búa til myndir með líkamanum sem sýna ákveðna tilfinningu eða aðstæður. Dæmi um þemu: gleði, ferðalag, leyndarmál, stormur. Hópurinn ræðir síðan hvað hann sér í myndunum. 4. Hlustun og ró (10–15 mín) Hljóðverk (ASMR), bls. 43: Nemendur skiptast í tvo hópa. Annar hópurinn liggur á gólfinu með lokuð augun. Hinn býr til rólega hljóðmynd með hljóðum og hlutum í rýminu. 5. Lok og ígrundun (5 mín) - Hugleiðsla, bls. 42: Stutt öndunaræfing.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=