LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 46 4. Tékk inn | Tékk út, bls. 6 (5 mín) Nemendur nota sama tilfinningaskala og í upphafi og ígrunda hvort líðan þeirra hafi breyst. Kennslustund 3 Fyrir hóp sem þekkist vel en þarf að fara út fyrir þægindarammann. Markmið: Hugrekki, sköpun, samvinna og leikgleði. Tími: 45–60 mínútur 1. Tékk inn | Tékk út, bls. 6 (5 mín) Nemendur lýsa líðan sinni með hljóði. 2. Upphitun á líkama og rödd (10–15 mín) - Zip–Zap–Boing, bls. 9: Hraður hópleikur sem reynir á fókus og viðbrögð. - Hókí pókí, bls. 22: Dans- og hreyfileikur sem losar um orku í hópnum. 3. Samvinna og sköpun (20–25 mín) - Zombieleikurinn, bls. 30: Samvinnuleikur þar sem hópurinn reynir að koma í veg fyrir að uppvakningur setjist. - Speglaleikur, bls. 33: Æfir samstillingu og líkamlega tjáningu. - Stillimyndir, bls. 32: Hópar skapa myndir með líkamanum og aðrir túlka. - Hljóðbrellur, bls. 37: Spuni þar sem hljóð og látbragð skapa sameiginlega senu. 4. Tékk inn | Tékk út, bls. 6 (5 mín) Nemendur meta líðan sína á skalanum 1–10.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=