LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 45 4. Traust og samvinna (15–20 mín) - Hvísluleikur, bls. 24: Æfir hlustun og samskipti. - Flækjuleikur, bls. 29: Hópurinn vinnur saman að því að leysa flækju. - Myndhöggvarinn, bls. 34: Pör vinna saman að því að skapa tilfinningar með líkamanum. 5. Tékk inn | Tékk út, bls. 6 (5 mín) Nemendur sitja í hring og nota orð yfir dýr til að lýsa líðan sinni. Dæmi: „Ég er rólegur köttur.“ „Ég er sprækur hundur.“ Kennslustund 2 Fyrir hóp sem þekkist en þarf að byggja upp traust. Markmið: Að efla samvinnu, leikgleði og tengsl innan hópsins. Tími: 40–60 mínútur 1. Tékk inn | Tékk út, bls. 6 (5 mín) Nemendur meta líðan sína á tilfinningaskala (1–10). 2. Upphitun á líkama og rödd (15 mín) - Stórt skip – lítið skip, bls. 27: Hreyfileikur sem reynir á hlustun og viðbrögð. - Skemmtanastjórinn (hreyfihermileikur), bls. 41: Hópurinn hermir eftir leiðtoga án þess að sá sem giskar uppgötvi hver stjórnar. - Græna slímið, bls. 39: Eltingaleikur þar sem þátttakendur tengjast saman í „keðju”. 3. Traust og samvinna (20–25 mín) - Speglaleikur, bls. 33: Pör spegla hreyfingar hvers annars. - Myndhöggvarinn, bls. 34: Nemendur tjá tilfinningar með líkamanum. - Skrifstofuspuni, bls. 36: Spunaleikur þar sem nýjar tilfinningar breyta stemningu á „vinnustað“.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=