LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 44 Samsetningar á kennslustundum Leiklist er kraftmikil og sveigjanleg kennsluaðferð sem getur stuðlað að sköpunargleði, tjáningu og félagslegum tengslum. Með leiklist fá nemendur tækifæri til að kanna tilfinningar, efla sjálfstraust og dýpka skilning á heiminum í kringum sig. Leiklistarleikir geta einnig hjálpað hópum að kynnast, byggja upp traust og æfa samvinnu. Með því að blanda saman ólíkum tegundum leikja – upphitun, hreyfileikjum, hópefli og skapandi verkefnum – er hægt að skapa fjölbreyttar og áhrifaríkar kennslustundir. Í þessum kafla eru kynntar fjórar tillögur að uppbyggingu kennslustunda. Þær eru ætlaðar til að veita kennurum innblástur og sýna hvernig hægt er að laga leiklistarkennslu að mismunandi hópum, bakgrunni og reynslu. Kennslustund 1 Fyrir hóp sem þekkist lítið eða ekki neitt. Markmið: Að kynnast, byggja upp traust og skapa öruggt andrúmsloft. Tími: 40–60 mínútur 1. Tékk inn | Tékk út, bls. 6 (5 mín) Nemendur sitja í hring og nota orð yfir veðurfar til að lýsa líðan sinni. Dæmi: „Ég er sól í dag.“ „Ég er smá rigning.“ 2. Nafnaleikir (10–15 mín) - Nafn og hreyfing, bls. 12: Nemendur segja nafnið sitt og gera hreyfingu sem hópurinn hermir eftir. - Uppvakningurinn - Zombie, bls. 13: Hreyfileikur þar sem nemendur þurfa að kalla nöfn samnemenda til að forðast að verða uppvakningur. 3. Upphitun á líkama og rödd (10–15 mín) - Að láta hreyfinguna ganga, bls. 25: Hljóð og hreyfingar ganga hringinn og breytast smám saman. - Danseltingaleikur, bls. 11: Skemmtilegur hreyfileikur með tónlist sem losar um orku í hópnum.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=