Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 43 EINBEITING Hljóðverk (ASMR) HÓPEFLI, RÓ, HLUSTUN Tilgangur Æfingin hvetur þátttakendur til að hlusta af athygli og skapa rólega hljóðmynd saman. Hún getur hjálpað hópnum að slaka á og einbeita sér að hljóðum og umhverfi. Framkvæmd 1. Nemendum er skipt í tvo hópa. 2. Annar hópurinn liggur á gólfinu með lokuð augun og hlustar. 3. Hinn hópurinn býr til rólegt hljóðverk með mismunandi hljóðum. Hljóðin geta verið til dæmis: • mjúkt pappírshljóð • fingur sem banka létt á borð • róleg hvíslandi orð • hljóð úr náttúrunni Markmiðið er að skapa hljóðmynd sem er róandi og áhugaverð fyrir þá sem hlusta. Eftir stutta stund skipta hóparnir um hlutverk. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • útskýra að hljóðin eigi að vera mjúk og róleg • hvetja til hlustunar og einbeitingar • tryggja að allir fái tækifæri til að bæði hlusta og skapa hljóð Athugið Þótt markmiðið sé að skapa rólega hljóðmynd finnst nemendum æfingin oft fyndin og skemmtileg. Gott er að leyfa þeirri gleði að vera til staðar en leiða hópinn aftur í rólega stemningu ef hávaði verður of mikill.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=