Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 42 EINBEITING Hugleiðsla RÓ, HLUSTUN Tilgangur Hugleiðsla getur hjálpað þátttakendum að róa hugann, beina athyglinni inn á við og ná betri einbeitingu. Hún hentar vel sem stutt uppbrot í kennslu eða í lok leikja til að skapa ró og jafnvægi í hópnum. Framkvæmd Þátttakendum er boðið að leggjast á gólfið eða sitja þægilega. Gott er að spila rólega tónlist í bakgrunni. 1. Þátttakendur loka augunum og einbeita sér að önduninni. 2. Leiðbeinandi biður hópinn að anda djúpt nokkrum sinnum saman, inn um nefið og út um munninn. 3. Síðan er hægt að leiða athyglina í gegnum líkamann og einbeita sér að einum líkamshluta í einu. Til dæmis: • byrja á tánum • færa athyglina yfir í iljar og hæla • halda síðan upp eftir fótunum • og að lokum upp í efri hluta líkamans Þátttakendur fá þannig tíma til að slaka á og beina athyglinni að líkamanum. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • skapa rólegt og öruggt andrúmsloft • leiða æfinguna með hægum og rólegum raddblæ • gefa þátttakendum nægan tíma til að slaka á • virða ef einhver vill frekar sitja eða fylgjast með í stað þess að taka fullan þátt Athugið Margar leiddar hugleiðslur má finna á netinu sem hægt er að nota í kennslu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=