LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 41 HREYFILEIKUR Skemmtanastjórinn SAMVINNA, EINBEITING, ATHYGLI Tilgangur Leikurinn eflir samvinnu, einbeitingu og athygli. Þátttakendur æfa sig í að fylgja leiðsögn, herma eftir og lesa í hópinn án orða. Framkvæmd 1. Þátttakendur standa í hring. 2. Einn þátttakandi fer út úr rýminu og bíður þar sem viðkomandi heyrir ekki samtal hópsins. 3. Hópurinn velur einn „skemmtanastjóra“ sem stýrir hreyfingum (t.d. með því að skipta reglulega um hreyfingu). 4. Sá sem fór út er kallaður inn og stendur í miðjum hring. 5. Allur hópurinn hermir eftir hreyfingum skemmtanastjóra laumulega, þannig að erfitt sé að sjá hver stjórnar. 6. Sá sem er í miðju fær þrjú gisk til að finna skemmtanastjórann, ef það tekst ekki gefur skemmtanastjórinn sig fram og fer nú út á meðan nýr er valinn. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • tryggja að skipt sé reglulega um hreyfingar (til að leikurinn verði lifandi) • hvetja hópinn til að herma án þess að stara á stjórnandann • stýra lengd lotu og skipta um hlutverk svo fleiri fái að prófa Útfærslur • Raddlaus / hljóðlaus: aðeins hreyfingar. • Með hljóði: stjórnandi bætir við líkamshljóðum (klapp, stapp) eða einföldum hljóðum.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=