LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 40 HREYFILEIKUR Dimmalimm SAMVINNA, ATHYGLI Tilgangur Dimmalimm er einfaldur og spennandi leikur sem eflir hlustun, athygli og sjálfstjórn. Leikurinn er góður sem upphitun, uppbrot eða útileikur og skapar oft mikla gleði. Framkvæmd 1. Afmarkið leiksvæði með skýrum byrjunar- og endapunkti. 2. Veljið einn þátttakanda sem er Dimmalimm. 3. Dimmalimm stendur við annan endann með bakið í hópinn. Hópurinn raðar sér í röð við hinn endann. 4. Dimmalimm telur upphátt: „Einn, tveir, þrír, DIMMALIMM!“ 5. Á meðan talið er mega þátttakendur færa sig nær (hlaupa, ganga eða skríða – eftir því sem þið ákveðið). 6. Þegar „DIMMALIMM!“ er sagt snýr Dimmalimm sér snöggt við og allir frjósa. 7. Sá sem hreyfir sig fer aftur á byrjunarreit. 8. Leikurinn heldur áfram þar til einhver nær að snerta Dimmalimm. Þá má annað hvort: sá sem snerti verður næsti Dimmalimm, eða Dimmalimm reynir að klukka einhvern á leiðinni til baka og sá verður næsti Dimmalimm. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • tryggja skýrar reglur um hreyfingu og „frystingu“ • velja hreyfiform (hlaupa/ganga/skríða) sem hentar rými og hóp • halda leiknum í öruggu flæði og stoppa ef einhver dettur eða rými verður ótryggt Athugið • Leikurinn fer best fram á opnu svæði með góðu rými. • Ef hópurinn er mjög orkumikill má breyta í „ganga hratt“ til að auka öryggi.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=