LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 4 Inngangur Léttir er leiklistarsmiðja fyrir börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi. Verkefnið var unnið í samstarfi Leiklistarskóla Borgarleikhússins og móttökudeildar Seljaskóla árið 2024 og styrkt af Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Markmið Léttis er að efla leiklistarkennslu og stuðla að þróun kennsluaðferða leiklistar í vinnu með börnum með flóttabakgrunn. Úr samstarfinu varð þessi námsefnisbæklingur sem inniheldur hópeflis- og leiklistarleiki sem ætlað er að styðja kennara og leiðbeinendur í vinnu með viðkvæma hópa. Leiklist er sérstaklega gagnleg tjáningarleið fyrir börn með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn, þar sem ekki er eingöngu reitt sig á talað mál. Léttir er þróaður með þennan nemendahóp í huga en æfingarnar eru sveigjanlegar og auðvelt að aðlaga að ólíkum hópum og aðstæðum. Efnið byggir á reynslu kennara Leiklistarskóla Borgarleikhússins og er samansafn leikja og aðferða sem hafa verið mótaðar og nýttar í gegnum tíðina. Leikirnir eiga það allir sameiginlegt að leggja áherslu á leiklist, tjáningu og þátttöku á forsendum hvers og eins. Leitast er við að skapa rými þar sem enginn er jaðarsettur vegna tungumáls eða uppruna heldur eru tengsl, samvinna og félagsfærni efld með leiknum. Við hvern leik eru merkingar sem vísa til áherslna æfingarinnar, hvernig framkvæma á leikinn, hvert hlutverk kennara er og stundum tillögur að útfærslum. Aftast í bæklingnum má finna hugmyndir að samsetningum fyrir kennslustundir. Leiklistin býr yfir þeim eiginleika að geta opnað dyr að nýjum heimum og gefa börnum tækifæri til að prófa sig áfram með það hver þau vilja vera. Þar geta þau fundið sína rödd og tjáð tilfinningar á eigin forsendum í öruggu og skapandi rými. Í leiklistinni eru mistök ekki endalok heldur upphaf nýrra tækifæra. Fyrir börn í viðkvæmri stöðu er leiklistin því ekki aðeins leikur heldur vettvangur til að efla sjálfstraust, finna léttinn í leikgleðinni og tengjast sjálfum sér og öðrum. Í leiklistinni fá börn í erfiðum aðstæðum rými til að njóta sín til fulls.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=