Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 39 HREYFILEIKUR Græna slímið LÍKAMI, KEPPNI, ÚTRÁS, ORKA Tilgangur Græna slímið er eltingaleikur sem eykur hreyfingu, kallar fram hlátur og styrkir samvinnu þegar „keðjan“ stækkar. Leikurinn hentar vel til útrásar og sem orkumikil upphitun. Framkvæmd 1. Afmarkið leiksvæði (oft hentar minna svæði en í hefðbundnum eltingaleik). 2. Einn þátttakandi byrjar að elta og „klukkar“ þann fyrsta sem hann nær í. 3. Við það að „klukka“ límast þau saman (taka í hönd eða halda utan um úlnlið/upphandlegg eftir því sem hentar) og þau elta saman. 4. Keðjan stækkar í hvert sinn sem klukkað er, þar til allir eru orðnir hluti af „slíminu“. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • tryggja öruggt rými og skýrar reglur • minna á létta snertingu og að passa upp á keðjuna • aðlaga stærð leiksvæðis að hóp og aðstæðum Athugið / Öryggi • Forðist of stórt rými; keðjan verður óstöðug ef hraði eykst of mikið. • Brýnið fyrir þátttakendum að hlaupa ekki á aðra og að sleppa tafarlaust ef einhver missir jafnvægi.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=