Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 38 HREYFILEIKUR Eltingaleikur LÍKAMI, KEPPNI, ÚTRÁS, ORKA Tilgangur Eltingaleikur er sígildur og vinsæll leikur sem hentar bæði í leiklistartímum og almennri kennslu. Leikurinn veitir útrás, eykur hreyfingu og styrkir leikgleði, auk þess að efla viðbragð, samvinnu og líkamlega meðvitund. Hann hentar öllum aldurshópum, frá leikskóla og upp í framhaldsskóla. Framkvæmd Leikurinn fer best fram í stóru og öruggu rými, inni eða úti. • Leiðbeinandi skilgreinir skýrt hvert leiksvæðið er og tryggir að rýmið sé laust við hindranir. • Einn þátttakandi er valinn til að „vera hann“. • Sá sem er „hann“ eltir hina þátttakendurna og reynir að klukka þá með léttri snertingu. • Þegar einhver er klukkaður, verður viðkomandi næsti sem „er hann“. • Leikurinn heldur áfram og þátttakendur skipta á að „vera hann“. Útfærslur • Frost: Þegar einhver er klukkaður frýs viðkomandi á staðnum þar til annar þátttakandi „frelsar“ hann með snertingu eða hreyfingu sem hópurinn ákveður. • Eltari og frelsari: Veljið einn eltara og einn frelsara og látið hlutverkin ganga á milli leikja. • Stikkfrí svæði: Skilgreinið svæði þar sem þátttakendur geta fengið stutta pásu. Hægt er að nefna það t.d. „stikkið“, „pásusvæði“ eða „griðastað“. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • tryggja öruggt leiksvæði og skýrar reglur • minna á að snerting eigi að vera létt • fylgjast með hraða og orkustigi hópsins • aðlaga leikinn að aldri, hópstærð og aðstæðum Athugið • Gott er að setja tímamörk eða hlé til að forðast of mikla örvun eða þreytu. • Hvetjið þátttakendur til að virða mörk annarra og fylgja reglum leiksins.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=