LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 37 SAMVINNA Hljóðbrellur SPUNALEIKUR, HLJÓÐ, HLUSTUN, EINBEITING, RÖDD, LÍKAMI Tilgangur Leikurinn eflir hugarflug og samvinnu og kennir hópnum að byggja upp hljóðheim sem styður leik án orða. Hann er bæði skapandi og fyndinn og hentar vel í stuttum lotum. Framkvæmd 1. Veljið stað: t.d. afmæli, skóg, flugvél, strætó. 2. 4 þátttakendur eru í einu: 2 leika (án tals og án hljóðs) 2 sjá um hljóðbrellur (fyrir leikinn) 3. Leikarar sýna með látbragði hvað er að gerast. 4. Hljóðhópurinn býr til hljóð sem passa við gjörðirnar (t.d. pappír rifnar, fótatak, belti spennt). 5. Spuni er bestur stuttur; skiptið oft svo allir fái að prófa bæði hlutverk. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • útskýra reglurnar skýrt áður en leikurinn hefst og minna á að leikarar eigi að nota látbragð en ekki rödd • hvetja hljóðhópinn til að fylgjast vel með athöfnum leikaranna svo hljóðbrellurnar passi við það sem gerist í senunni • hjálpa hópnum að halda spunanum gangandi ef hann stoppar eða missir flæði • tryggja að allir fái tækifæri til að bæði leika og búa til hljóðbrellur • minna á að spunarnir séu stuttir svo hægt sé að skipta oft um hlutverk Athugið Gott getur verið að nota hljóðnema eða einfalt hljóðkerfi ef það er til staðar en leikurinn virkar einnig vel án þess. Markmiðið er að búa til skýra og skemmtilega hljóðmynd sem styður það sem gerist í senunni.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=