Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 36 SAMVINNA Skrifstofuspuni SPUNALEIKUR, FYRIR 5 EÐA FLEIRI Tilgangur Skrifstofuspuni æfir spuna, hlutverk og tilfinningaviðbrögð í hversdagslegu samhengi. Leikurinn er góður til að kanna samskipti og valdatengsl á leikrænan hátt. Framkvæmd 1. Stillið upp rými eins og „skrifstofu“ (borð, stólar og einfaldir hlutir). 2. 4 þátttakendur leika starfsfólk. Einn er „viðskiptavinur“. 3. Leikurinn byrjar með venjulegum vinnudegi (fundur, símtöl, samtöl). 4. Viðskiptavinur kemur inn með skýra tilfinningu/ástand (t.d. óstjórnleg gleði, pirringur, stress, feimni, tortryggni). 5. Hópurinn bregst við og spuni þróast þar til tilfinningin hefur „litað“ rýmið. 6. Næsti viðskiptavinur kemur inn með nýja tilfinningu; hinn fer út. 7. Haldið áfram þar til öll hafa fengið að prófa. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • útskýra leikinn áður en hann hefst og minna á að tilfinningar eigi að vera sýndar með skýru látbragði • hjálpa þátttakendum að halda spunanum gangandi ef hann stoppar eða missir flæði • hvetja þátttakendur til að bregðist við tilfinningum hvers annars og byggi áfram á því sem gerist í leiknum • tryggja að allir fái tækifæri til að taka þátt, bæði í hlutverki starfsfólks og viðskiptavina.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=