Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 35 SAMVINNA Bílaspuni SPUNALEIKUR, TILFINNINGAR, FYRIR 5 EÐA FLEIRI Tilgangur Bílaspuni skapar létt andrúmsloft og gefur þátttakendum tækifæri til að kanna tilfinningar og viðbrögð í samspili. Leikurinn hentar vel til að æfa spuna, hlutverk og samskipti. Framkvæmd 1. Raðið fjórum stólum þannig að þeir myndi bíl: tveir stólar fyrir framsæti og tveir fyrir aftursæti. 2. Veljið fjóra þátttakendur í bílinn: 1 ökumann og 3 farþega. 3. Hópurinn byrjar að spinna „venjulega” bílferð. 4. Annar þátttakandi stendur fyrir utan og „húkkar sér far“ með skýru látbragði og tilfinningu (t.d. stress, gleði, þreyta, kuldi, hræðsla eða elli). 5. Farþegarnir bjóða viðkomandi inn í bílinn. Þá færa allir sig um eitt sæti nema ökumaðurinn:  ökumaður fer út bílnum  farþeginn sem var í hinu framsætinu verður nýr ökumaður  annar farþeginn í aftursætinu færir sig fram í framsætið  sá sem einnig sat í aftursæti færir sig í hitt aftursætið  nýi farþeginn sest í lausa aftursætið 6. Tilfinning nýja farþegans smitar út frá sér og stemningin í bílnum breytist í samræmi við hana. 7. Spuninn heldur áfram þar til nýr þátttakandi húkkar sér far og ferlið endurtekur sig. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • Setja tímamörk á hverja tilfinningu (t.d. 30–60 sek.). • Leyfa hópnum að finna „hápunkt“ áður en næsti farþegi kemur inn. • hvetja þátttakendur til að leika tilfinningarnar ýkt og skýrt svo auðvelt sé fyrir alla í bílnum að taka upp sömu stemningu. Lokaumræða (valkvætt) Ræðið stutt: hvað var fyndið/áhugavert og hvernig tilfinningin breytti samskiptum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=