LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 34 SAMVINNA Myndhöggvarinn HREYFILEIKUR, LÍKAMLEG TJÁNING Tilgangur Leikurinn styður tjáningu án orða og hjálpar þátttakendum að túlka og sýna tilfinningar með líkamanum. Hann hentar vel fyrir fjöltyngda hópa. Framkvæmd 1. Þátttakendur fara í pör. 2. Einn er „myndhöggvari“ og hinn „leir“. 3. Myndhöggvari mótar leir í stellingu sem tjáir tilfinningu (t.d. gleði, reiði, sorg) með leiðbeinandi og mjúkum hætti. 4. Þegar stellingin er tilbúin stígur myndhöggvari til baka og „skúlptúrinn“ er sýndur. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • setja skýrar reglur um snertingu og samþykki • minna á að mótun megi einnig fara fram án snertingar (með orðlausri leiðsögn og speglun) ef hópurinn vill • velja tilfinningar/þemu sem henta hópnum Athugið • Útskýrið í upphafi hvaða svæði á líkamanum má snerta, s.s. hendur, fætur, höfuð, bak og maga. • Fáið skýrt samþykki og minnið á að það er alltaf í lagi að segja „nei“ eða biðja um aðra útfærslu.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=