Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 33 SAMVINNA Speglaleikur HREYFILEIKUR, LÍKAMLEG TJÁNING, EFTIRHERMA Tilgangur Speglaleikur byggir upp einbeitingu, samvinnu og tengsl. Hann æfir skýra líkamsvitund og samstillingu án orða. Framkvæmd 1. Þátttakendur fara í pör og standa andspænis hvort öðru. 2. Einn er „leiðandi“ og hinn „spegill“. 3. Leiðandi hreyfir sig hægt og skýrt og spegill hermir eftir eins nákvæmlega og hægt er. 4. Eftir nokkrar mínútur skipta pörin um hlutverk. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • minna á hægan takt og skýrar hreyfingar • skipta um hlutverk svo allir fái að leiða Útfærslur • „Speglun með tilfinningu“ (ró, gleði, reiði, þreyta). • „Spegill án augnsambands“ (fyrir lengra komna) til að auka áskorun.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=