LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 32 SAMVINNA Stillimyndir SKÖPUN, TÚLKUN, TJÁNING, EINBEITING Tilgangur Stillimyndir hjálpa hópnum að tjá hugmyndir og tilfinningar án orða og æfa túlkun, samvinnu og ígrundun. Leikurinn hentar sérstaklega vel fyrir fjölbreytta tungumálahópa. Framkvæmd 1. Skiptið hópnum í tvo hópa: leikendur og áhorfendur. 2. Leikendur fá þema og búa til stillimynd (mynd með líkamanum) á „sviði“. 3. Áhorfendur skoða myndina og ræða túlkun: Hvað sjáið þið? Hvaða aðstæður gætu þetta verið? Hvað segir fjarlægð, líkamsstaða og svipbrigði? 4. Þegar áhorfendur hafa rætt saman og sagt sína túlku, segja leikendur frá því hvað þau ætluðu sér. 5. Endurtakið með nýju þema eða með nýjum leikendum. Útfærslur • Einn / tveir / hópur: mismunandi fjöldi á sviði. • Myndir í stað orða: sýnið mynd af aðstæðum sem hópurinn endurgerir (gott fyrir fjöltyngda hópa). • Bætið við búningum, leikmunum, hljóðmynd eða staðsetningu utandyra. Athugið • Þemu eins og „ofbeldi“ geta verið viðkvæm; veljið þemu í takt við aldur, hóp og aðstæður.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=