Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 31 SAMVINNA Hlutaleikurinn SKÖPUN, TÚLKUN, TJÁNING, EINBEITING Tilgangur Leikurinn þjálfar ímyndunarafl og látbragð og er góð upphitun fyrir spuna. Fyrir yngri hópa styður hann einnig eftirtekt, einbeitingu og hlustun. Framkvæmd 1. Hópurinn stendur í hring. 2. Einhver hversdagslegur hlutur er látinn ganga hringinn (t.d. taska, sími, kassi). 3. Þegar þátttakandi fær hlutinn sýnir viðkomandi með látbragði nýja notkun á hlutnum, þannig að hann „breytist“ í eitthvað annað. 4. Ekki má nota orð eða hljóð — aðeins látbragð. 5. Hópurinn getur giskað í hvað hluturinn hefur breyst (ef það er ekki augljóst). Útfærslur • Setjið tímamörk (t.d. 5–10 sek.) til að auka flæði. • Veljið þema (t.d. „í ferðalagi“, „á spítala“) og látið alla túlka innan þess.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=