Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 30 SAMVINNA Zombieleikurinn (stólaleikur) UPPHITUN, LÍKAMI, HLUSTUN, HREYFING, FYRIR 5 EÐA FLEIRI Tilgangur Orkumikill leikur sem eflir samvinnu, viðbrögð og skipulag innan hópsins. Leikurinn hentar vel sem upphitun og útrás. Framkvæmd 1. Raðið stólum um rýmið (jafnmargir og þátttakendur) með góðu bili og í mismunandi áttir. 2. Allir setjast nema einn. Einn stóll er laus. 3. Sá sem stendur er „zombie“ og reynir að ná að setjast í lausa stólinn. 4. Zombie má hreyfa sig hratt (hlaupa ef rými og hópur þola), en þarf að halda hnjánum saman allan tímann.  Ef bil myndast á milli hnjáa fer zombie aftur í byrjunarstöðu. 5. Markmið hópsins er að koma í veg fyrir að zombie setjist í lausa stólinn með því að skipta hratt um stóla. 6. Regla: Ef þátttakandi stendur upp úr stól má viðkomandi ekki setjast aftur í sama stól tvisvar í röð. 7. Ef þátttakandi brýtur regluna verður viðkomandi næsti zombie. 8. Ef zombie nær að setjast, verður sá sem sest síðastur í lausa stólinn næsti zombie. Útfærslur • Setjið tímamörk á „líftíma“ zombie (t.d. 2 mínútur). • Leyfið hópnum að ræða stuttlega stefnu áður en leikur hefst. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • tryggja gott bil á milli stóla • minna á reglurnar (hnén saman / ekki sama stól tvisvar í röð) • stilla hraða og stöðva leik ef rými verður ótryggt Athugið • Þetta er ærslafullur leikur, gætið að hindrunum. • Ef hópur þarf meiri ró má breyta „hlaupa“ í „ganga hratt“.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=