Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 29 SAMVINNA Flækjuleikur TRAUST, ÞOLINMÆÐI Tilgangur Flækjuleikur byggir upp traust, samvinnu og þolinmæði. Leikurinn krefst skýrra samskipta og sameiginlegrar lausnaleitar. Framkvæmd 1. Hópurinn stendur þétt í hring og lokar augunum. 2. Allir rétta hendur inn í miðjuna og finna sér tvær hendur hjá sitthvorum aðilanum. 3. Leiðbeinandi tryggir að:  enginn haldi báðum höndum í sama þátttakanda  engir tveir haldi í sömu hönd  ekki sé haldið í þann sem stendur beint við hliðina 4. Allir opna augun. 5. Hópurinn leysir flækjuna án þess að sleppa tökum. Markmiðið er að enda í hring (eða hringjum) þar sem enginn er tengdur. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • hvetja til samvinnu og rólegra samskipta • forðast að „leysa“ flækjuna fyrir hópinn (nema öryggi krefjist) Athugið • Leikurinn getur tekið tíma og því er gott að hafa nægan tíma fyrir hann. • Ef hópurinn er stór er oft betra að byrja í minni hópum og stækka síðan.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=