LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 27 SAMVINNA Stórt skip, lítið skip VIÐBRÖGÐ, ORÐAFORÐI, FYRIR 5 EÐA FLEIRI Tilgangur Leikurinn eflir hlustun, viðbrögð og samvinnu og er líka góður til að leggja inn orðaforða. Hann hentar sem upphitun eða orkumikill millikafli og má auðveldlega aðlaga að aldri og hóp. Framkvæmd 1. Skiptið rýminu í þrjú svæði: einn veggur = stórt skip annar veggur = lítið skip miðja rýmis = eyja 2. Þegar leiðbeinandi kallar „stórt skip“, „lítið skip“ eða „eyja“ fara allir á réttan stað. 3. Þegar leiðbeinandi kallar önnur orð (sjá listann hér að neðan) býr hópurinn til myndastyttu eða hreyfingu með hljóði (ein eða í litlum hópum, eftir reglu). 4. Valfrjálst: Spilið tónlist og stoppið hana reglulega; þegar tónlist stoppar kemur kallið. Orð og viðbrögð • Stórt skip/Lítið skip/Eyja: Fara á skilgreint svæði. • Fallbyssa: Beygja sig fram og grípa utan um kálfa (eða tær ef hentar). • Fugl/mávur: Blaka höndum og kvaka. • Skipstjóri: Setja útrétta hönd upp og veifa. • Sjóræningi + páfagaukur (2 saman): annar er sjóræningi (hönd á mjöðm, hin yfir augum). hinn er páfagaukur (stendur fyrir aftan, blakar og kvakar). • Stór: Hoppa hátt jafnfætis. • Lítill: Beygja sig niður. • Hafmeyja: Sitja með fætur þétt saman til hliðar (sporður) og „pósa“. Má bæta við hljóði/söng. • Sjór: Leggjast á gólfið, mynda bylgju með höndum og búa til sjávarhljóð. • Björgunarbátur (3 saman): Sitja í röð og róa ímyndað. • Höfrungar (4 saman): einn gerir „hring“ með höndum, hin þrjú þykjast „stökkva“ í gegn með hljóðum og látbragði. • Gamnislagur (5 saman): leikrænn skylmingabardagi (engin snerting).
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=