Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 26 SAMVINNA Semjum dans saman HREYFING, SKÖPUN, ORKA, HLUSTUN, ENDURTEKNING Tilgangur Leikurinn hvetur þátttakendur til að hreyfa sig, hlusta og vinna saman að sameiginlegu verkefni. Hann eflir sköpun, samvinnu og minni þar sem hópurinn byggir smám saman upp sameiginlegan dans. Framkvæmd Nemendur standa í hring og fjörug tónlist er sett á. 1. Fyrsti þátttakandi gerir eina hreyfingu í fjórum töktum. 2. Allur hópurinn endurtekur hreyfinguna í fjórum töktum. 3. Næsti þátttakandi bætir við nýrri hreyfingu í fjórum töktum. 4. Hópurinn framkvæmir þá: - fyrstu hreyfinguna í fjórum töktum. - síðan aðra hreyfinguna í fjórum töktum. Þá eru komnir 8 taktar. Næsti þátttakandi bætir við þriðju hreyfingunni og hópurinn framkvæmir allar hreyfingarnar í röð. Þannig byggist dansinn smám saman upp, þar til allir í hringnum hafa bætt við hreyfingu og hópurinn hefur samið sameiginlegan dans. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • hvetja nemendur til að prófa einfaldar og skýrar hreyfingar • hjálpa hópnum að halda takti og fylgja tónlistinni • styðja nemendur sem eru feimin við að finna einfaldar hreyfingar Athugið Ef hópurinn er stór getur verið gott að stoppa dansinn eftir nokkrar hreyfingar og dansa hann frá upphafi með tónlist.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=