Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 25 SAMVINNA Að láta hreyfinguna ganga HREYFING, RÖDD, ORKA, HLUSTUN Tilgangur Leikurinn er eins konar „líkamshvísluleikur“ þar sem hreyfing og hljóð ganga á milli þátttakenda. Hann eflir hlustun, athygli, samstillingu og líkams- og raddtjáningu, auk þess að skapa leikgleði og orku í hópnum. Framkvæmd Þátttakendur standa í hring. 1. Einn þátttakandi byrjar með því að gera hljóð og hreyfingu. 2. Næsti þátttakandi tekur við og hermir eftir hreyfingunni og hljóðinu og sendir þau áfram til næsta við hliðina. 3. Leikurinn heldur áfram koll af kolli þar til hreyfingin og hljóðið hafa farið allan hringinn. 4. Smám saman má leyfa hreyfingunni og hljóðinu að breytast lítillega eftir því sem þau ganga áfram í hringnum. Útfærslur • Stækkandi orka: Sá sem tekur við gerir sömu hreyfingu og hljóð en aðeins stærra og kraftmeira. Sá sem endar í hringnum verður hápunkturinn. • Án raddar: Notið aðeins látbragð eða líkamshljóð (t.d. klapp, stapp, fingrasmell) og leggið áherslu á að „senda orku“. • Augnsamband: Sá sem byrjar horfir í augun á næsta þátttakanda til að senda „orkuna“ áfram. • Margir hringir: Farið nokkra hringi og látið mismunandi þátttakendur byrja og enda. • Minni hópar: Skiptið stórum hópum í minni hringi og látið þau vinna samtímis. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • hvetja til skýrrar eftirhermu og samstillingar • minna á augnsamband og skýrar sendingar á „orku“ • stilla hraða leiksins (hægja eða auka hraða) eftir þörfum hópsins • tryggja öruggt rými þar sem öll geta tekið þátt á eigin forsendum

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=