LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 24 SAMVINNA Hvísluleikur HLUSTUN, EINBEITING Tilgangur Hvísluleikur er samskiptaleikur sem gengur út á að senda skilaboð í hring með því að hvísla þau í eyra næsta þátttakanda. Leikurinn æfir hlustun, einbeitingu og þjálfar hugmyndaflugið. Hann endar oft í skemmtilegum samanburði á því hvernig skilaboðin breytast á leiðinni. Framkvæmd Þátttakendur sitja í hring (á stólum eða á gólfi). 1. Kennari eða leiðbeinandi biður einn nemanda að hugsa upp orð eða stutta setningu. 2. Nemandinn hvíslar skilaboðunum í eyra næsta þátttakanda. 3. Hver þátttakandi hvíslar skilaboðunum áfram eins og þau heyrðust, koll af kolli, þar til skilaboðin ná til síðasta þátttakanda. Gott er að hvetja hvern og einn til að einbeita sér að því að heyra skilaboðin rétt og hvísla þau áfram eins nákvæmlega og unnt er. 4. Þegar skilaboðin hafa farið allan hringinn segir síðasti þátttakandinn, sá sem situr við hliðina á þeim sem sendi skilaboðin af stað, upphátt það sem hann heyrði. Þá má sá sem bjó þau til í upphafi segja frá því hvort að skilaboðin hafi skilað sér rétt og hópurinn ber saman upphaf og endi. Munurinn á upphaflega skilaboðinu og hvernig það endar getur oft verið ótrúlega fyndinn og skemmtilegur. Útfærslur • Fyrir yngri nemendur eða þau sem eru með takmarkaða getu í íslensku: notið stutt orð eða einföld orðasambönd, t.d. „Kisan er sofandi.“ • Fyrir eldri nemendur eða þau sem eru sterkari í tungumálinu: notið lengri setningar eða orð með skemmtilegum samhljóðum sem getur verið snúið að greina. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • tryggja ró og þögn á meðan hvíslað er • hvetja til einbeitingar og virðingar fyrir þeim sem er að hvísla og hlusta • velja orð eða setningar sem henta hópnum
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=