Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 22 HÓPEFLI Hókí pókí HREYFILEIKIR, SAMVINNA, LÍKAMI, RÖDD Tilgangur Hókí pókí er klassískur leikur sem eflir tjáningu, samhæfingu, hlustun og leikgleði. Leikurinn hentar öllum aldurshópum og er sérstaklega góður til upphitunar og hópeflis. Framkvæmd Þátttakendur standa í hring. Kennari eða leiðbeinandi leiðir leikinn og syngur textann (með eða án undirleiks). Þátttakendur syngja með og framkvæma þær hreyfingar sem lýst er í textanum. Texti og hreyfingar Dæmi: hægri hönd • „Við setjum hægri höndina inn“ – setja hægri hönd inn í hringinn • „Við setjum hægri höndina út“ – setja hægri hönd út fyrir hringinn • „Við setjum hægri höndina inn“ – setja hægri hönd aftur inn • „Og hristum hana svo“ – hrista höndina Viðlag • „Við gerum hókí pókí“ – dilla sér eða hreyfa sig frjálst • „Og snúum okkur í hring“ – snúa sér á staðnum • „þEtta Er Allt Og sUmt“ – klappa á atkvæðum Í viðlaginu Síðan takast þátttakendur í hendur og hlaupa á fyrsta Ó-inu inn í hringinn, næsta ó-i afturábak og þurfa að passa að halda áfram að leiðast: • Ó hókí hókí pókí. (fara inn í hringinn) • ó hókí hókí pókí. (bakka til baka) • Ó hókí hókí pókí. (fara inn í hringinn) • Þetta er allt og sumt. (klappa á atkvæðum og bakka til baka) Líkamshlutar sem hægt er að nota: • Við setjum vinstri höndina inn • Við setjum hægri fótinn inn • Við setjum vinstri fótinn inn • Við setjum höfuðið inn • Við setjum allan búkinn inn (þá hoppa þátttakendur inn í hringinn)

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=