Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 21 HÓPEFLI Hænuleikurinn EINBEITING, HLUSTUN, ORKA, LÍKAMI, RÖDD Tilgangur Leikurinn þjálfar einbeitingu, athygli og skjót viðbrögð. Leikurinn er orkumikill og skemmtilegur og líkist leikjum eins og Hú–Ha–Cha og Zip–Zap–Boing þar sem „fókusinn“ gengur á milli þátttakenda. Framkvæmd Þátttakendur standa þétt í hring og halda höndum upp að andlitinu eins og fingra-gleraugu. 1. Sá sem byrjar sendir „fókusinn“ áfram með því að gera hænugól og færa aðra höndina niður frá andlitinu. 2. Hljóðið og handahreyfingin segja til um hver á að taka næst við. Til dæmis: • Ef þátttakandi gerir tvö hænugól og færir hægri höndina tvisvar niður, tekur annar þátttakandi til hægri við. • Ef þátttakandi gerir þrjú hænugól og færir vinstri höndina þrisvar niður, tekur þriðji þátttakandi til vinstri við. Leikurinn heldur þannig áfram hringinn koll af kolli. Sérregla leiksins Það er stranglega bannað að hlæja. Ef einhver fer að hlæja þarf viðkomandi að: • hlaupa eða ganga einn hring utan um hópinn • gagga eins og hæna • blaka handleggjunum eins og hænuvængjum Að því loknu fer þátttakandinn aftur í hringinn og leikurinn heldur áfram. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • útskýra reglurnar skýrt áður en leikurinn hefst • minna hópinn á að fylgjast vel með og halda góðum fókus • tryggja að leikurinn haldi góðum hraða án þess að verða óskipulagður

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=