Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 20 HÓPEFLI Hú–Ha–Cha! SAMVINNA, HLUSTUN, EINBEITING, ORKA, LÍKAMI, RÖDD Tilgangur Leikurinn reynir á skjót viðbrögð og samstillingu hópsins og er kröftug upphitun fyrir bæði líkama og rödd. Leikurinn getur reynst flókinn fyrir mjög stóra hópa eða yngri börn. Gott er því að gefa sér tíma til að læra hreyfingarnar og hljóðin hægt í upphafi og auka hraðann smám saman. Markmiðið er að leikurinn verði hraður og taktfastur. Framkvæmd Þátttakendur standa í hring. 1. Leikmaður A byrjar. Viðkomandi bendir með útrétta handleggi fram fyrir sig eins og um ímyndaðan ljósgeisla sé að ræða, horfir á leikmann B og segir hátt og skýrt: „Hú!“ 2. Leikmaður B bregst strax við með því að lyfta handleggjunum upp yfir höfuðið og segja: „Ha!“ 3. Þeir sem standa sitthvoru megin við B bregðast þá við samtímis. Þau sveifla handleggjunum út til hliðanna eins og þau séu að senda ímyndaðan ljósgeisla áfram í átt að B og segja: „Cha!“ 4. Að því loknu tekur leikmaður B við hlutverki A og sendir „ljósgeislann“ áfram til næsta þátttakanda með „Hú!“, og leikurinn heldur þannig áfram hringinn koll af kolli. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • hjálpa hópnum að ná sameiginlegum takti áður en hraðinn er aukinn • minna á skýrt augnsamband og ákveðnar hreyfingar • tryggja að öll fái tækifæri til að taka þátt og að leikurinn gangi hringinn • fylgjast með að rýmið sé öruggt og að hreyfingar séu innan marka Athugið • Gætið þess að hendur sveiflist alltaf út í loftið en snerti ekki aðra þátttakendur. • Mikilvægt er að halda góðu bili milli þátttakenda.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=