LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 19 HÓPEFLI Setjumst samtaka! TRAUST, SAMVINNA Tilgangur Leikurinn krefst samstillingar og samvinnu og hjálpar hópnum að vinna saman að sameiginlegu verkefni. Framkvæmd 1. Þátttakendur standa í hring með jafnt bil á milli sín. 2. Allir halda í húllahring eða band sem myndar hring. 3. Hópurinn reynir að setjast niður á sama tíma. 4. Ef það tekst er næsta skref að standa upp aftur samtímis. Útfærslur • Annar hver þátttakandi snýr í gagnstæða átt • Standa á einum fæti • Halda aðeins með annarri hendi Hlutverk kennara Markmiðið er að: • minna á rólegar og samstilltar hreyfingar • tryggja að rýmið sé öruggt
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=