LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 18 SAMVINNA Göngutúr blindandi TRAUST Tilgangur Leikurinn eflir traust og samvinnu milli þátttakenda og þjálfar hlustun og ábyrgð. Framkvæmd 1. Tveir þátttakendur fara í göngutúr um rýmið 2. Annar er með bundið fyrir augun. 3. Hinn leiðir félaga sinn í gegnum rýmið. 4. Aðrir þátttakendur liggja á gólfinu og mynda hindranir. 5. Leiðsögumaðurinn leiðir félaga sinn án orða í gegnum rýmið og hjálpar viðkomandi fram hjá hindrunum. Eftir ferðina skipta þau um hlutverk. Útfærslur • Bæta við stólum og borðum sem hindrunum. • Setja verkefni, t.d. fara undir borð eða stíga yfir hindrun. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • tryggja að rýmið sé öruggt • fylgjast með að leiðsögnin sé varfærin • minna á að samskipti fari fram án orða
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=