LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 17 SAMVINNA Staurinn TRAUST Tilgangur Leikurinn byggir upp traust innan hópsins og krefst samvinnu og athygli. Framkvæmd 1. Hópurinn stendur í þéttum hring. 2. Einn þátttakandi stendur í miðjunni með lokuð augun og gerir sig alveg stífan eins og staur. 3. Sá í miðjunni lætur sig halla eða detta varlega í átt að hópnum. 4. Hópurinn grípur viðkomandi og ýtir honum mjúklega áfram til næsta í hringnum. Þannig vaggar þátttakandinn rólega inni í hringnum. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • tryggja að hópurinn standi þétt og sé tilbúinn að grípa • minna á mjúkar hreyfingar og góða samvinnu • fylgjast með öryggi allra þátttakenda Athugið • Þessi leikur krefst góðs trausts í hópnum. • Mikilvægt er að öll samþykki að taka þátt og séu tilbúin.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=