Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 16 HÓPEFLI Tröll – Nornir – Álfar SAMVINNA, LÍKAMI, RÖDD Tilgangur Leikurinn er skemmtilegur hópleikur sem byggir á svipaðri hugmynd og skæri–blað–steinn. Hann eflir samvinnu, skjót viðbrögð og leikgleði og hentar vel sem upphitun. Reglur leiksins Framkvæmd Kennari skiptir hópnum í tvo hópa. 1. Kennari markar skýra miðju í rýminu, t.d. með stól eða merki. 2. Hóparnir fara sitthvoru megin í salinn og ákveða í leyni hvort þau eru tröll, nornir eða álfar. Allir í hópnum velja sama hlutverk. 3. Þegar hóparnir hafa ákveðið hlutverk kallar kennarinn þá að miðju salarins. 4. Hóparnir standa í tveimur línum andspænis hver öðrum, með um 1–2 skref á milli. 5. Stjórnandi telur niður: „Þrír – tveir – einn!“ 6. Þá leika báðir hóparnir sitt hlutverk með hreyfingu og hljóði (sjá útskýringu hér að neðan). 7. Sá hópur sem vinnur eltir hinn hópinn sem reynir að flýja yfir í sinn hluta salarins án þess að vera klukkaður. 8. Þeir sem eru klukkaðir fara yfir í hinn hópinn. Ef hóparnir velja sama hlutverk verður jafntefli og enginn eltir í það skiptið. Lýsing á hlutverkum Tröll • hávært öskur • hendur teygðar upp í loft Álfur • setjast á hækjur • hendur upp að bringu eins og kanína • segja „búbúbúbb“ Norn • bogið bak • vísifingur á lofti • segir „mímímí“ með skrækri rödd Tröll vinna Nornir Nornir vinna Álfa Álfar vinna Tröll Hlutverk kennara Markmiðið er að: • útskýra reglurnar vel áður en leikurinn hefst • tryggja að rýmið sé öruggt og nægilegt pláss til að hlaupa • minna á að snerting sé létt þegar klukkað er Athugið • Gott getur verið að spila tónlist meðan leikurinn fer fram. • Leikurinn hentar best í rúmgóðu rými.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=